Já, það er sko ekki ofsögum sagt að jólin séu hvít hér á Manhattan. Við vorum inni við mestallan daginn í gær, við lestur auðvitað, en þegar ég fór út seinnipartinn, til þess að sjá um frumurnar mínar, var allt á kafi í snjó! Það var ofboðslega fallegt. Sérstaklega þar sem það var almennur frídagur, og allir litlu húsvarðarkallarnir höfðu ekki mokað allan snjóinn af gangstéttunum, og það voru fáir á ferli til að traðka niður snjóinn! Þetta er víst í fyrsta skipti í um þrjátíu ár sem það eru hvít jól hér.
Það var líka geðveik snjókoma, þannig að þegar ég kom loksins á labbið var ég með maskara út um allt andlit.
Ég dreif mig að splitta frumunum, og svo fórum við Mörður niður á Times Square til þess að horfa á söngleikinn The Dance of The Vampires. Þetta er sko í síðasta skipti sem ég fer í leikhús án þess að skoða leikdóma áður, því að sýningin var vægast sagt léleg. Við höfðum ætlað á Urine Town, en allir ódýru miðarnir aftast voru búnir, þannig að við tímdum ekki alveg að borga hundrað dollara fyrir hvorn miða og fórum á vampírudansinn í staðinn. Það var eiginlega fáránlegt hvað það var ekkert gott við sýninguna, söngurinn, hljómsveitin, sviðsmyndin, búningarnir, allt saman var þetta frekar lélegt bara. Við flettum furðu lostin í gegnum leikskrána og komumst að því að ferilskrá flestra leikaranna, tónlistarhöfundanna, lekstjórans, og bara allra sem að sýningunni komu var stórglæsileg. Við héldum eiginlega að við værum svona rugluð, þangað til heim kom og við flettum upp leikdómum á Times.
En allavegana, við gerðum gott úr kvöldinu og fórum niður í Greenwich Village í leit að veitingastað og enduðum inni á alveg stórkostlega takkí dæner þar sem við borðuðum hrásalat drekkt í dressingu og barbekjú kjúkling og franskar "beint úr pakkanum". Þetta var eiginlega bara alveg stórkostlegt að vera á jólunum á svona ekta dæner, með rauðum leðursætum og þjónum í þjónabúningum. Úti snjóaði bara og snjóaði og lókal liðið úr hverfinu sat við borðin í kring og skiptist á jólagjöfum.