Júhú! Ég hlakka svo til að fara heim í lok maí. Herdís hringdi í mig í gær og við spjölluðum um heima og geima í klukkutíma. Það er alltaf svo gaman að tala við hana Herdísi. Við ætlum að fara í göngu saman heima, en erum ekkert búnar að ákveða hvar eða neitt. Það skiptir mig heldur ekki öllu máli. Það verður frábært að komast út í náttúruna eftir vetursetu í stórborginni.
Solla og Svanur kíktu í mat til okkar í gær. Mörður eldaði ljúffenga Ýsu elegant, sem er oft á borðum hjá foreldrum hans. Ég verð að segja að eldamennskan hjá honum heppnaðist stórvel. Og svo er alltaf svo gott að fá ýsu í matinn.
Solla og Svanur voru hress að vanda og við sátum frameftir kvöldi og drukkum vín og bjór og spjölluðum um heima og geima. Þau eru búin að búa hér í fimm ár og hafa frá mörgu að segja og líka mjög mörg góð ráð að gefa. Mér finnst að allir dagar ættu að vera jafnljúfir og gærdagurinn.