Mánudagur, 6 maí, 2002
Búin að panta miða... og borga....

Þá er ég búin að kaupa miðann heim og ekki aftur snúið! Reyndar er einn galli á gjöf Njarðar, ég kemst ekki fyrr en á laugardagskvöldið 25. maí, þannig að ég missi af útskriftinn hennar mömmu. En ég næ að minnsta kosti að óska henni til hamingju daginn eftir, með kossi á kinn.

Það var heldur ekkert laust flug nema frá Boston, þannig að ég fer þaðan um kvöldið og flýg svo aftur til Boston föstudaginn 7. júní. Þannig að Íslandsför mín verður 12 daga löng.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 06:39 EH