Miðvikudagur, 8 maí, 2002
Ragnar er þokkalega brjálaður út

Ragnar er þokkalega brjálaður út í Dabba. Annars dáist ég að honum fyrir að nenna virkilega að fylgjast með íslenskum stjórnmálum alla leiðina frá Boston. Ég er líka alveg sammála honum með það að þau virki eins og hálfgerður skrípaleikur svona úr fjarlægð. Einhvern vegin virkar Ísland svo lítið og skrítið svona úr fjarlægð.

Það er aðeins eitt málefni sem vekur áhuga minn, og það er álversmálið. Mér finnst íslensk stjórnvöld vera orðin að algerum álvershórum og umhverfishryðjuverkamönnum.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 10:24 EH
Frí

Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé einhvern verða pirraðan yfir öllum frídögunum sem Íslendingar fá á vorin. Og ég sem er hérna í Ameríkunni, alveg dauðöfundsjúk, því það eru aldrei frí hér. Mér finnst fjöldi frídaga á ári á Íslandi segja sitt um lífsgæðin þar. Íslendingar eru duglegir og vinna mikið, en eru ekki jafn geðbilaðir og Bandaríkjamenn að taka sér bara aldrei frí. Ég heyrði því fleygt einhvers staðar að Ísland væri næst á eftir Þýskalandi í heiminum, sem það land sem hefði flesta svona frídaga á ári. Ég er nú alveg sammála Ágústi að það væri sniðugara að hafa þessa daga á mánudögum eða föstudögum þannig að úr verði löng helgi, en mjög margir leysa það mál á þann hátt að þeir taka sér sumarfrísdag á föstudegi, og þá verður úr fjögurra daga helgi.
Hér er til dæmis nær ekkert jólafrí, alls ekkert páskafrí og hvað þá að það sé frí á uppstigningardag. Sumarfrí hjá fólki er tvær vikur, og yfirleitt ekki vel séð að fólk taki tvær vikur samfleytt í frí. Og sumarfrí á launum.. Orlof? Hvað er það?

Posted by Erna Magnúsdóttir at 09:00 FH