Var að horfa á Á.J. í Kastljósinu. Ég vorkenni honum nú greyinu. Að vera að lögsóttur fyrir að stela því sem hann var búinn að vinna sér inn... Ég er líka viss um að hann notaði ekki ágóðan af þjófnaðinum fyrir sig og sína, því ekki er hann gráðugur þessi elska, hann hefur örugglega gefið mismuninn til fátækra.
Ég tek eina alvöruprófið mitt það sem af er náminu á þriðjudaginn. Það er lokapróf í ónæmisfræði. Þetta er alvörupróf af því að til prófs er námsefni heils misseris eins og ég var vön í Háskólanum, en hingað til hef ég aðeins tekið próf í "Core" kúrsinum, en þar voru lokapróf í hverju fagi á 1-2 vikna fresti allt síðasta misseri. Það voru líka heimapróf sem kröfðust mikillar vinnu, en einskis utanaðbókarlærdóms.
Ónæmisfræðiprófið krefst hins vegar mikils utanaðbókarlærdóms. Í flestum spurningum er spurt um hvernig eitthvað ákveðið fyribæri í ónæmiskerfinu virkar og svo er venjulega spurt hvernig maður myndi sýna fram á að virknin væri nákvæmlega þessi (sem maður lýsti), með tilraunum. Til þess að getað svarað því þarf maður að vera með hlutina þokkalega vel á hreinu.
Það besta er samt að ég má taka bókina með mér í prófið, og glósurnar mínar, og þar að auki má ég taka tölvuna með mér og skrifa svörin í Word!