Mánudagur, 13 maí, 2002
Hjarta mitt brennur

Úff, en sorgleg stemning hérna. Það er þrumuveður úti, og ég sit hér inni í hálfgerðu myrkri og reyni að troða í heilann á mér öllu sem ég get um sjálfsofnæmi.... Ugh... mér leiðist að læra um kránkleika. Til þess að hafa nú tónlist í stíl við ósköpin skellti ég Rammstein í, og hækkaði. Kránkleikar og Mein Hertz brennt passa ágætlega saman.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 04:11 EH
Stríðsvélin

Heyr, heyr! Það er svo gott að lesa svona færslu eins og Herra Muzak skrifar, þegar maður er umkringdur öllum hernaðaráróðrinum. Mörður benti mér líka á annan punkt. Bandaríski herinn er auðvitað ólmur að komast í stríð, því verk hans er m.a. að ala upp einstaklinga sem kunna að heyja stríð. Það versta sem gæti komið fyrir herinn er að það væru margar kynslóðir í hernum sem hefðu aldrei farið í stríð....

Posted by Erna Magnúsdóttir at 08:08 FH