Þriðjudagur, 14 maí, 2002
Ramble on

Váááá.. ljúft að vera búin í þessu prófi. Ég er að hugsa um að taka bara próflausa kúrsa hér eftir, það er miklu meira vit í því. Það er ekkert gáfulegt að troða í sig "trökklódum" af staðreyndum og framkvæma svo hið klassíska "data dump" daginn eftir, svo vitnað sé í Martie Chalfie erfðafræðing og ormagaur með meiru.

Ég skellti mér í gymmið eftir prófið og rústaði næstumþví þrekstiganum af æsingi, en ég er á fullu að reyna að koma mér í form fyrir gönguna okkar Herdísar. Það hjálpaði ágætlega til að vera með blöndu af Rammstein og Marilyn Manson remixum á MP3 spilaranum. Ég er annars að fíla þá græju í strimla. Þokkalega nettur.

Kvöldinu varði ég upp í sófa að horfa á einhvern Deitlæn þátt um geðbilaðan morðingja og á meðan leitaði ég að fljótlegum pastauppskriftum í Matreiðslubók Nönnu. En núna þori ég varla að fara að sofa af hræðslu við að dreyma einhverja vitleysu um peningamálastjórnun Seðlabanka Íslands eða annað kjaftæði.....

Posted by Erna Magnúsdóttir at 11:16 EH
Óska góðs gengis.

Já, er ekki bara frábært að það eigi að lækka vexti núna, svona mátulega til þess að lækka gengið á krónunni áður en ég kem í heimsókn til Íslands...
Annars þá dreymdi mig í nótt að rauða strikið hafi brostið. Ágætt að ég var ekki berdreymin þar. Ég ætti kannski að kíkja til sálfræðings, er eðlilegt að mann dreymi svonalagað?

Posted by Erna Magnúsdóttir at 10:44 FH
Grauturinn er sangur

Fall er fararheill..... vonandi, því ég byrjaði daginn á að brenna við hafragrautinn minn. Ég er að hugsa um að sleppa því alveg að fara á labbið í dag og læra bara fyrir prófið til klukkan eitt og fara svo og rústessu. Ég er samt með pínu samviskubit, því ég mætti bara fyrir hádegi á labbið í gær. Jamm, þetta er ekki eins og hið ljúfa líf í Háskólanum þegar maður var bara í prófum þegar maður var í prófum, laumaðist kannski tvisvar í viku og hlóð á nokkra síkvensera upp í Erfðagreiningu... En ekkert hángs, B-frumu þorskunin bíður, ásamt vefjaflokkunarprótinunum....

Posted by Erna Magnúsdóttir at 08:45 FH