Fyrsti heili dagurinn minn á labbinu síðan á föstudaginn er liðinn. Ég PCRaði alveg hreint heil ósköp, og ég stefni á að klára alla blautvinnu í rótasjónsverkefninu mínu fyrir helgi. Þetta var alveg prýðisdagur, þótt langur væri.
Í hádeginu, á meðan PCRið mallaði, fór ég á fyrirlestur hjá engum öðrum en Craig Venter, sem er núna í stjórn TIGR en var áður forstjóri Celera. En Celera er frægast fyrir það að hafa raðgreint genamengi margra lífvera, þar á meðal manna og músa. Þetta var alveg hreint afbragðs fyrirlestur, þar sem Venter sagði stuttlega frá ferli sínum í raðgreiningarbissnessnum og gagnrýndi einnig harðlega NIH og aðrar opinberar stofnanir sem styrkja líffræðirannsóknir, fyrir að vera of fastmótaðar í skoðunum um hvað væru styrkjahæf verkefni. Þetta var nú samt lítill vísindafyrirlestur, hann sagði aðallega brandara og talaði um eigin afrek. Það var nú samt í góðu lagi, því hann hefur afrekað slatta af góðum hlutum.
Ég kom ekki heim úr vinnunni fyrr en klukkan tíu, og skellti mér þá upp til Josh og Melissu að horfa á West Wing, en Mörður var einmitt líka staddur þar. Og núna borða ég bara nammi og undirbý mig andlega fyrir PCR morgundagsins....