Jæja, loksins dreif ég í því og setti RSS glugga inn á bloggið okkar. Þetta eru allt blogg sem ég les nánast daglega, það er, ég les þau þegar þau eru uppfærð. Jáá.. það er ýmislegt hægt að gera sér til dundurs á labbinu þegar maður er að bíða eftir PCRi! Þau blogg sem ég setti þarna inn eiga það líka nær öll sameiginlegt að ég byrjaði að lesa þau svona um það bil þegar ég byrjaði að blogga sjálf, og reyndar fleiri, en þetta eru þau sem ég hef haldið tryggð við.
Uppáhalds bloggið mitt er án nokkurs vafa Dagbók Kristjáns og Stellu. Ég skammast mín líka pínu fyrir það hversu löt ég er við það að linka á öll þessi blogg sem ég er alltaf að lesa, því oft er fólk að skrifa skemmtilega og áhugaverða hluti. Kannski er það vegna þess að bloggið okkar Marðar er einskonar "útlegðarblogg". Það var stofnað til þess að vinir og ættingjar heima á Fróni fengju innsýn í daglegt líf okkar hérna í New York, og þess vegna hef ég ekki mikið verið að setja pælingar inn, eða linkað á þá sem mér finnst vera að segja eitthvað sniðugt. Ég skal lofa að reyna að bæta mig í framtíðinni, því mér finnst þetta einn skemmtilegasti eiginleiki bloggfyrirbærisins. Það myndast oft einskonar samræður milli blogga og mér finnst bráðfyndið þegar fólk byrjar að rífast milli blogga!
Ég hef áfram hér til vinstri linka á vini mína og önnur blogg sem eru ekki inn á RSSinu hjá Bjarna, ég nefnilega kann ekki að setja þau inn, og grunar að ég þurfi að hafa aðgang að server eða eitthvað til þess að skilgreina þau, eins og Kristján gerði fyrir síðuna okkar.
Mér finnst eiginlega fyndið að hugsa til þess að ég hafi ekki vitað hvað blogg væri fyrr en Mörður stofnaði þessa síðu fyrir okkur í lok október! Og núna les ég öll þessi blogg og er alveg forfallinn bloggari.
Nú er ég bara heima að tjilla svona barasta á miðjum mánudegi. Ég er búin með verkefnið mitt á labbinu, eða réttara sagt, mér vinnst ekki tími til þess að halda áfram með neitt, þar sem ég er að fara heim á laugardaginn. Þetta er nú ekki allt búið enn, því ég þarf að kynna verkefnið mitt og þessar litlu niðurstöður sem ég fékk fyrir labbfélögunum á labbfundi á fimmtudagsmorgun. Þess vegna á ég að vera svaka dugleg núna að vera að lesa. Og.. auðvitað er ég bara að bloggast á fullu.
Það er sko heldur enginn mánudagur í mér í dag, því ég vann alla helgina, þannig að það er bara svona einhverdagur og þess vegna ætla ég bara að gera einhversdagsverk í dag. Ég er líka næstumþví eins og hinn dæmigerði Íslendingur í dag. Mér segir svo hugur að það sé ekki mánudagur í meirihluta Íslendinga í dag. Samt ekki heldur einhverdagur, heldur frekar bara frídagur.