Þriðjudagur, 21 maí, 2002
Ég er ekkert smá fegin

Ég er ekkert smá fegin að vera búin að fara upp í Frelsisstyttuna, fyrst að það á að fara að sprengja hana í loft upp!

Posted by Erna Magnúsdóttir at 09:06 EH
Svartur Íkorni

Ætli það hafi eitthvað forspárgildi að það hljóp svartur íkorni í veg fyrir mig á sama staðnum bæði í gær og í dag á skokkhringnum mínum í Central Park?

Posted by Erna Magnúsdóttir at 07:20 EH
Mannanöfn

Mér finnst mannanafnanefnd taka ansi stórt upp í sig. Mér finnst þetta ekki neitt annað en skerðing á tjáningarfrelsi. Mér finnst eitt að mega ekki nefna barnið sitt Satan, og annað að mega ekki nefna litla drenginn sinn Kai. Kannsk á hann bara danskan afa sem heitir Kai! Er nafnið Bendt til dæmis ekki komið inn í málið á þennan hátt, og beygist nú bara án endinga nema í eignarfalli? Hemm.. mér finnst Bendt fínt nafn, en Kai er líka fínt nafn. Mér finnst Íslendingar vera að nota röng meðul til þess að vernda tunguna. Við verðum líka að sætta okkur við að heimurinn er orðinn svo lítill. Áhrifin frá útlöndum eru orðin svo sterk, og það að banna fólki að nefna börnin sin ákveðnum nöfnum held ég að eigi ekki eftir að breyta neinu um erlend áhrif. Það eina sem það gerir er að fólk verður neikvæðara gagnvart tungumálinu okkar sem sníður okkur svo þröngan stakk. Við erum nefnilega ekki bara Íslendingar, heldur líka hluti af mikið stærra menningarsvæði, og það er varla hægt að banna okkur að verða fyrir áhrifum þar frá.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 09:59 FH