Jæja, mín bara vöknuð =)
Ég var svo þreytt í gær að ég var alveg að geyspa golunni. Kom snemma heim og hafði nær öll ljós slökkt og horfði á sjónvarpið. Svo þegar ég fór að sofa hlustaði ég á hugleiðsludiskinn sem Melissa lánaði mér og gersamlega rotaðist á miðnætti. Ég hef ekki sofnað svona snemma í tvær vikur!
En nú þýðir ekkert hangs, ég er að verða of sein í jóga...