Föstudagur, 14 mars, 2003
Blooggle

Já, það ætti kannski ekki að koma á óvart að síðan að Google keypti Blogger, hefur Google ótrúlega oft legið niðri! Way to go Blogger!

Ég ætti nú ekki að kvarta því að þegar Blogger og Blogspot eru niðri, þá eykst traffíkin hingað!

Posted by erna at 06:26 EH
Hver?

Hver var að senda mér frétt af mbl.is? Takk, sá hinn sami, en þú gleymdir að kvitta og ég er náttúrulega forvitin....

Posted by erna at 10:40 FH
Helvítis krakkaormar

Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að búa á stúdentagörðum. Ég er svo einstaklega heppin að í húsinu við hliðina á mér býr einmitti hópur af nítján ára bólugröfnum strákum undir þeim formerkjum að þeir séu í svokölluðu bræðralagi, eða fraternity upp á amerísku. Sigma Nu, gjessovel.

Þetta væri nú svo sem allt í lagi, ef þeir væru ekki með hljómsveit í kjallaranum hjá sér, sem er í leiðinni kjallarinn að húsinu okkar, því þetta er svona múrsteinshúsalengja. Æfingarhúsnæðið er algerlega óhljóðeinangrað og verslings strákgreyin eru frekar ófærir um hljóðfæraleik og kunna bara þrjú lög. Það stöðvar þá nú ekki í því að hamra á hljóðfærin í fimm tíma á dag, okkur nágrönnum þeirra til mikillar gleði. Ég meina, hver gleðst ekki yfir því að fá að gera jóga í takt við psycho killer, spilað svo illa að maður fattar varla hvaða lag er verið að spila. Það færir mann svo sannarlega nær nirvana.

Þetta væri nú kannski allt saman gott og blessað ef maður þyrfti ekki líka að hlusta á endalaus partý, vakna upp við þá grýtandi bjórflöskum út um gluggann, mígandi fram af svölunum og ælandi í bakgarðinn.

Ó, bandarísk æska, efnileg og full fyrirheita.

Posted by erna at 12:59 FH