Mánudagur, 7 apríl, 2003
Árstíðarugl og tímaskekkja

Haldið þið ekki bara að það hafi verið kafaldsbylur hér í New York í dag. Kannski myndi ég ekki taka svo sterkt til orða ef ég væri heima á Fróni, en það snjóaði duglega í fimm tíma í dag að minnsta kosti og það náði alveg að festa snjó og allt. Mér finnst það vera kafaldsbylur ef það er sjöundi apríl og maður er staddur á sama breiddarbaug og Madrid...

Annars er dagurinn búinn að vera pínu skrítinn. Fyrsti vinnudagurinn eftir að tímanum er breytt er alltaf undarlegur. Til að bæta gráu ofaná svart gleymdi ég úrinu mínu í gymminu í gær, þannig að ég var gersamlega utangátta og án tímaskyns í dag. En þetta lagast fljótt og það góða er að það var bjart til klukkan hálf átta í dag.

Á vorin og haustin ruglast ég mjög oft á hvaða árstíð er. Þetta hefur þó aðeins komið fyrir mig á kvöldin. Ég er kannski niðursokkin í hugsanir, eins og í gær, og stend mig allt í einu að því að halda að það sé haust. Þetta kom oft fyrir mig í haust líka, ég þurfti að hugsa mig um áður en ég mundi hvaða árstíð væri. Ég held að í gær hafi ég uppgötvað hverju þetta sætir. Málið er að ef það er vor heima á íslandi, þá fer það ekki á milli mála, af því að það er frekar kalt, en mjög bjart allan sólarhringinn. Á haustinn er svo farið að kólna aftur, en þá er dimmt á kvöldin, þannig að þó að það sé sama hitastig og á dæmigerðu vorkvöldi, þá er birtan önnur. Hér er hins vegar ekki mikill birtumunur á hausti og vori, og það ruglar mig í rýminu.

Posted by erna at 08:21 EH