Ég sé að það eru fleiri vísindamenn en ég sem eru vantrúaðir á "SARS from the stars" kenninguna. Chandra Whickamashinge mætir miklum mótbyr frá okkur jarðbundnu vísindamönnunum!
Gat ekki setið á mér vegna fréttar á mbl.is um að vísindamenn í hóp Wickramasinghe við Sheffield University haldi því fram að SARS veiran hafi komið utan úr geimnum. Þetta er reyndar engin svakaleg vísindagrein, heldur er þetta meira svona lesendabréf sem hópurinn sendir inn til þess að benda á þennan möguleika. Engin gögn eru sýnd til að rökstyðja tilgátuna.
Þið getið skoðað greinina hér. Þarf reyndar innskráningu. Þið megið bara nota notendanafnið mitt: magnusdottir, og lykilorðið er: vondaveiran.
Þetta er ansi merkileg pæling. Að jörðin sé undir stöðugri örveruárás utan úr geimnum og að þessar örverur séu þróunarfræðilega skyldar því lífi sem þrífst á jörðinni. Hmmmm... merkilegt. Ég er ansi skeptísk á þetta og held því fram að annað hvort hafi vísindamennirnir mengað búnað sinn með örverum áður en þau lögðu af stað í söfnunarleiðangur, eða þá að örverur sem að finnast í heiðhvolfinu séu hreinlega bara ekkert að koma utan úr geimnum heldur neðan af jörðinni. Mikið einfaldari skýring. Og í anda vísindanna held ég mig við að útskýra fyrirbæri með einföldustu tilgátunni sem ég get hugsað mér. Þessar örverur eru ekki geimverur (eh.. eða geimveirur...) heldur jarðneskar örverur sem hafa einhvern veginn komist upp fyrir veðrahvolfið og út í heiðhvolfið.
Hvernig ættu annars að finnast veirur þarna uppi sem hafa þróast nógu nálægt lífríki jarðar að þær geti sýkt frumur spendýra á jörðinni?
Mér finnst nú frekar þróunarfræðilega hæpið að veira utan úr geimnum hafi sameindafræðilega "þekkingu" eða segjum bara getu til þess að smita mannafrumur. Samkvæmt mínum kokkabókum þarf svakalega tilraun til að það geti gerst. Nema að kenningin sé sú að sýklarnir komi frá jörðinni, fari upp í heiðhvolfið og þaðan aftur niður á jörð, lengst í burtu. -Ég átta mig ekki alveg á því.
Ég prófaði að fletta SARS upp á PubMed, og komst að því að síðan SARS greindist fyrst hafa verið skrifaðar um 130 greinar um veikina. Nokkuð magnað, en inni í þessarri tölu eru bæði fræðigreinar og svo greinar frá blöðum eins og Time.
Ég hef lítið sem ekkert að blogga um í dag, þar sem vinnan og ritgerðarsmíð eiga hug minn allan. Alls ekkert leiðinlegt það. Ég fíla (tilvonandi) verkefnið mitt alltaf betur og betur.
Þeir sem vilja geta smellt á eftirfarandi linka til þess að sjá hvaða greinar ég var að lesa í dag (ég vildi ekki linka á PDF fælana, en það er alltaf hlekkur í listanum efst í hægra horninu sem vísar á þannig fæl):
Hvernig veit húðin hvar á að vera hár og hvar ekki?
Groucho og Blimp-1 vinna saman
Hvar eru stofnfrumur húðarinnar og hvernig er örlögum þeirra stjórnað?
Áhrif keratin-10 "knockouts" á húð.
Góða skemmtun!