Laugardagur, 24 maí, 2003
Alltaf sama svínið

Get of my back
Leave me alone
What do you want
Don't you have any friends...

Snilld!

Ég er sko að hlusta á Alltaf sama svínið, safndisk sem Smekkleysa var að gefa út með hinum og þessum smáskífum. Ég sit hérna í algjöru "eighties losti" og hlusta á Bootlex með lagið Trash Attack. Minnir mig sko á Eiðar 1989. Vá.. ég er bara farin að heddbanga á fullu... tíhíhí..

Mæli annars með þessum diski.

Posted by erna at 03:31 EH
Final Push

Í dag er rigningardagur. Ég var að koma úr búðinni þar sem ég keypti mér kaffi frá Jövu. Nú er vatnið að sjóða, Evora hljómar um íbúðina og ég bretti upp ermarnar.

Ég hef sett mér það markmið að klára ritgerðina mína um helgina, enda er réttsvo mánuður þangað til að ég þarf að verja hana og ekki seinna vænna en að leggja lokahönd á hugsmíðina.

Þannig að um helgina mun ég sitja hér við tölvuna og skrifa á milli þess sem að ég grúfi mig yfir vísindagreinar til þess að fá smáatriði í aðferðafræði á hreint. Á morgnana mun hljóma róleg tónlist, seinnipartinn spila ég rokk, fram á kvöld, en enda svo aftur á rólegu tónunum. Hver veit nema ég geri smá jóga inn á milli eða drífi mig út að skokka í einhverjum almenningsgarðinum.

Bissí en vonandi skemmtileg helgi framundan!

Posted by erna at 11:15 FH
Árdís og jafnræðið

Ég var að lesa grein Árdísar um jafnréttismál á Íslandi. Ég er sammála henni um margt, eins og lokaorð hennar að hún vilji ná árangri af því að hún er hún en ekki af því að hún er kona, ég held að flestar konur geti verið sammála henni um það.

Hins vegar verð ég að segja að eins og staðan er í dag er ekki ólíklegt að hún fái ekki að ná árangri af því að hún er hún, einmitt vegna þess að hún er kona. Ég er ekki að segja að ég sé fylgjandi jákvæðri mismunun, en svo að ég haldi áfram pælingu Árdísar um það að með jákvæðri mismunun sé verið að brjóta á rétti karla, spyr ég: "Hvort er betra að brjóta á rétti kvenna, eins og staðan er í dag, eða að breyta lögunum og brjóta á rétti karla?" Og þar að auki finnst mér kannski hæpin rök að það sé verið að brjóta á rétti karla, þar sem að jákvæð mismunun á sér aðeins stað ef um jafnhæfa einstaklinga er að ræða.

Reyndar er þessi pæling um "jafnhæfa einstaklinga" sem mér finnst vafasömust varðandi jákvæða mismunun og er ein ástæðanna fyrir því að ég er á móti henni, því að það er of mikið matsatriði og oft erfitt að dæma um hvenær einstaklingar eru jafnhæfir, til þess að lögin nýtist á réttlátan hátt.

Ég verð líka að segja að ég tel Árdísi vanmeta aðstæður nokkuð og mér finnst bera mikið á þessu hugarfari hjá konum á mínum aldri. Að málin séu bara í góðum farvegi og að við þurfum bara að bíða eftir því að jafnræði náist held ég að sé mikill misskilningur. Ég held að konur þurfi að standa vökulum augum um réttindi sín, til þess að missa ekki þann ávinning sem orðið hefur. Ég verð pínu hrædd þegar ég sé unga, gáfaða og metnaðargjarna konu eins og Árdísi sofna á verðinum og halda að málin séu í alvöru í svona góðum farvegi. Auðvitað búum við við mikið meira frelsi en konur hafa gert nokkurn tíman áður, en það er ekki þar með sagt að við þurfum ekki að halda áfram að berjast fyrir réttindum okkar. Ég held að það sé svolítið erfiður hjalli framundan, baráttan í framtíðinni á kannski eftir að snúast meira um að breyta þjóðfélaginu í kvenvænna samfélag heldur en að breyta lögum og reglum um jafnrétti. En það er þessi barátta sem verður að heyja, við megum ekki sofna á verðinum, dætur okkar munu ekki þakka okkur fyrir það.

Posted by erna at 12:38 FH