Ég var að koma inn úr dyrunum úr smá hlaupatúr. Það var ekkert smá næs. Þetta var svona eins og að fara út að hlaupa um verslunarmannahelgina í Reykjavík -ekki hræða á stignum.
Það var líka svona ekta hlaupaveður, fjórtán stiga hiti og úði.
Hér kvarta allir og kveina yfir veðrinu eins og alltaf. Ótrúlegt. Það er sama hvar maður er í heiminum, hvernig veðrið er og allt, fólk bara getur ekki hætt að kvarta. Ef það er ekki of heitt, þá er of kalt. Annað hvort er of langt síðan það hefur rignt, eða þá að það rignir of mikið.
Ég brosi bara með sjálfri mér, því að ég veit betur. Það þýðir sko ekkert að kvarta yfir veðrinu.
Oh.. ekki tókst mér að klára ritgerðina. Aðallega af því að ég var að lesa í gær og fékk svo margar nýjar hugmyndir sem ég ætla að koma inn. Frábært reyndar. Mig kitlaði alveg í magann mér finnst þetta svo spennandi!
Í dag er frídagur hjá flestum í Ameríku, Memorial Day. Ekki hjá líffræðinemum samt, ég er að fara að drífa mig í vinnuna, en ætla bara að vinna stutt, til svona fjögur eða fimm og fara svo heim að skrifa...