Æji... ég svaf allt of lengi, þrátt fyrir að hafa farið snemma í háttinn. Urrr.. þannig að það er útséð með að ég komist á kajak í dag...
Það er bara sama helgarstemningin hér og í gær.. róleg tónlist í græjunum, vatnið í kaffið að sjóða og kötturinn sefur ofaní skókassa.
Nú er að duga eða drepast.
p.s. Það er komin upp sú staða í mínu heilabúi eftir langvarandi fjarvistir bóndans að ég er farin að hugsa alfarið á ensku vegna skorts á daglegri íslenskuörvun. Þess vegna þurfti ég orðabók til þess að skrifa færsluna hérna að neðan (þessa um matinn). Ég þurfti virkilega ensk-íslenska orðabók til þess að fletta upp þýðingum á því sem ég var að hugsa. OMG I'm turning American!