Vá, nú hefði borgað sig að eiga gemsa. Þetta er svona í þriðja skiptið á ævinni sem þessi hugsun flýgur í gegnum huga mér. Maður endar kannski á því að fá sér svoleiðis einhvern tíman á ævinni, mig hefur bara aldrei langað til þess eiginlega....
Ég var nefnilega búin að mæla mér mót við vinkonu mína niðri í Scandinavia House, en þar var live jazz í gangi. Ég fór því niðreftir, en hún komst svo ekki úr vinnunni og hafði enga leið til þess að hafa samband.
Jassinn var fínn. Ég var líka ein á ferð og lenti í þvílíkum viðreynslum að ég þurfti þvílíkt að berja af mér karlpeninginn. Pikkupplína dagsins var: "So, are you from Denmark?" En það var bara gaman, þeir voru nefnilega allir kurteisir og bara gaman að spjalla.... Intellektjúal lið sem mætir svona á skandinavískan djass.
En nú er ég komin heim, hlusta á nágrannan minn hana Melissu spila á eitthvert blásturshljóðfæri á meðan regnið bylur á gluggunum, eldingarnar blossa og þrumurnar dynja. Kósí....