Laugardagur, 7 júní, 2003
Enginn er verri þótt hann vökni

Ég hjólaði í vinnuna í dag í alveg hreint ausandi rigningu. Algeru syndaflóði. Það lá við að ég þyrfti að synda með hjólið á köflum... neii.. kannski ekki alveg, en samt. Það er eitthvað alveg frábært við að hjóla í svona dembu. Að skvetta vatninu allt í kringum sig, fara vísvitandi í dýpstu pollana og finna gusurnar ganga yfir sig. Ég held að fimmára stelpan í mér komi fram við þessi tækifæri.
Kosturinn við vatn er líka að það hefur þann eiginleika að þorna bara, þannig að á meðan afgangur borgarbúa bölvuðu rigningunni, greip ég tækifærið og skvetti svolítið í kringum mig.

Vinnufélagarnir hristu hausinn, þeim finnst ég pínu skrítin held ég. En til hvers að láta alltaf veðrið koma í veg fyrir góða skemmtun?

Posted by erna at 10:58 EH