Sunnudagur, 8 júní, 2003
Helgaruppgjörið

Jæja, ekki vöknaði ég neitt í dag.
Ég var svakalega dugleg að vinna við ritgerðina mína og núna á ég bara eftir að lesa smá og bæta við einni tilraun, ráðfæra mig við sérfræðinga í hársekkjaþroskun (ég er ekki að grínast), setja inn þrjár myndir og þá er þetta komið. Ég held ég afhendi ritgerðina á föstudaginn, en nú eru tvær vikur í prófið. Oh... það verður svo gott þegar það verður búið =)

Það var sko engin útihátíð um helgina eins og ég talaði um. Hátíðarhaldarar klikkuðu á að redda skemmtanaleyfi og allt heila klabbið var fært inn á Giants Stadium (í New Jersey, sem er náttúrulega hneyksli út af fyrir sig), þannig að við nenntum ekki að standa þar í rigningunni. Sé bara Radiohead síðar. Fúlt samt.

Veðurspáin er loksins eitthvað að taka við sér. (Mér finnst reyndar kósí að hafa svona pínu hlýtt og dumbungslegt eins og í dag....), en það á að vera sól í nokkra daga, þannig að það verður sko hjólað á stuttbuxunum í vinnuna á morgun =)

Posted by erna at 10:45 EH