Haldið þið ekki að ég sé enn bara að lufsast hérna heima hjá mér og klukkan er að verða ellefu.
Ég planaði nær enga labbvinnu í dag af því að ég ætla að skila inn ritgerðinni minni. Hins vegar á ég bara eftir að setja inn eina mynd, þannig að ég ákvað að sofa bara út...... næææs. Stundum fær maður að njóta þess að vera enn nemi.
Ég er ekkert smá ánægð með ritgerðina mína. Ég var sennilega óþarflega lengi að skrifa hana, en það tengist nú líka því að hún var unnin svona í hjáverkum með 60 stunda vinnuviku. En alla vegana, ég fékk hugmynd að verkefni frá prófessornum mínum og nú er ég búin að vinna stóran hluta af hugmyndavinnunni fyrir doktorsverkefnið mitt. Ég er búin að leggjast undir feld og íhuga vel utanaðkomandi þætti og setja á svið lítið leiksvið fyrir verkefnið. Ég er búin að setja fram nokkrar vel ígrundaðar tilgátur og skrifa um allar þær leiðir sem ég ætla að fara til þess að prófa tilgáturnar. Það er í raun meginþorri ritgerðarinnar. Þetta er ekkert smá sniðugt kerfi að láta mann skrifa svona ritgerð í stað þess að henda manni bara inn á labb og láta mann byrja að vinna undir svaka pressu án þess að vera búinn að hugsa almennilega hvert vinnan gæti leitt mann.
Svo er bara að sjá hvort að nefndin mín sé sammála mér og telji verkefnið fýsilegt!