Sunnudagur, 15 júní, 2003
Brúðkaupsstyrktaraðili

Kræst! Ég sit hér í sófanum og þykist vera að útbúa fyrirlesturinn minn í powerpoint. Ég er náttúrúlega með kveikt á sjónvarpinu til þess að dreifa huganum aðeins....

Allavegana, þá var þáttur í gangi áðan um fólk sem að fær fyrirtæki til þess að sponsora brúðkaupið sitt. Manni finnst mikið dæmi gert úr brúðkaupum heima á Íslandi og oft finnst mér nóg um kapphlaupið og steríjótýperinguna sem fylgja þeim. En maður hefur ekki séð neitt fyrr en maður sér fólk undirbúa brúðkaup hér í Ameríkunni. Sko, það fer eftir árstíð hvernig brúðarmeyjakjólarnir eiga að vera á litin, það verða allir hneykslaðir ef brúðarmeyjarnar eru í dökkrauðu í júni, því það vita jú allir að þeir eiga að vera í pastel litum þá sko..... Dökkrautt er fyrir desemberbrúðkaup. Og svo framvegis.

Konur hér láta bjóða sér að bíða með andan í hálsinu þar til kærastinn biður þeirra á hefðbundinn hátt og gefur þeim grjóthnullung á hring, og auðvitað biður hann föðurinn líka um hönd dótturinnar. Allt mjög gamaldags og hefðbundið. Undirbúningurinn tekur oft tvö ár, enda ekki ráð nema í tíma sé tekið ef allt á að vera FULLKOMIÐ. Það er eins og brúðkaup hér snúist um servíetturnar og blómaskreytingarnar, ekki heitin sem verið er að strengja.

Og nú keyrði um þverbak. Til þess að fólk þurfi nú örugglega ekkert að spara við sig í brúkaupshaldi, þá er það alltaf að verða algengara að fólk fái fyrirtæki til þess að sponsora brúðkaupið og hengi í staðinn upp auglýsingar í veislusalnum og búi til stuttermaboli með auglýsingum handa brúðkaupsgestum.

En ótrúlega rómantískt!

Posted by erna at 11:41 EH
Strandferð og fleira

Undanfarnir dagar eru búnir að vera stórskemmtilegir. Ég skilaði ritgerðinni minni til prófnefndarmeðlima á föstudaginn og tjillaði eiginlega bara það sem eftir lifði dags. Fór á bjórkvöld og svo fórum við stelpurnar niður í bæ og fengum okkur alvöru pitsur, svona ekta ítalskar, og sötruðum bjór með. Við kíktum líka í svona kynlífshjálpartækjabúð því að ein okkar var að gæsa systur sína í gær og keypti handa henni tippapela til að fylla af áfengi og tippasleikjó fyrir allar stelpurnar í partýinu. Ég endaði svo heima hjá Adelene, þar sem við drukkum dirty martinis og spjölluðum fram á nótt.

Í gær morgun drifum við okkur svo allar út úr bænum, til Fire Island, sem er reyndar mest þekkt fyrir að vera einhvers konar sambland af hommanýlendu og sumarbústaðalandi fyrir ríka borgarbúa. Förinni var heitið í sokkna skóginn. Við vörðum deginum við að labba í flæðarmálinu á ströndinni og busla í köldum sjónum og ganga í skóginum. Adelene gerði alveg frábært nesti handa okkur öllum sem við borðuðum á bekk í hinum sokkna skógi og svo fórum við á ströndina og sofnuðum þar í tvo tíma. Sem betur fer var sólin ekki mjög sterk vegna misturs, því að þá hefði sennilega þurft að skafa mig upp af ströndinni. Eftir meira busl í sjónum og göngutúr á ströndinni tókum við ferjuna til baka og fengum okkur ís, rétt í þann mund er það skall á þrumuveður. Það var frekar fyndið að borða ís úti í rigningu, en það var bara ekki hægt annað en að fá sér ís eftir dag á ströndinni.

Heimförin sóttist seint, það var þung umferð aftur í bæinn, en það gerði lítið til í svona góðum félagsskap. Þegar við komum aftur heim pöntuðum við okkur teikát og svo fór ég bara heim og horfði á vídejó í fyrsta skipti í hálft ár eða eitthvað, ég var svo búin á því.

Í dag er svo nýr og betri dagur og ég er að undirbúa fyrirlesturinn fyrir prófið mitt. Ég hlakka svo til þegar prófið verður búið og ég get farið að einbeita mér að öðrum hlutum.

Posted by erna at 12:27 EH