Mánudagur, 16 júní, 2003
Djöfuls aumingjaskapur er í mér

Hmmm... það er ýmislegt um að velja núna:

Að blogga þunglyndislega um það hvað ég nenni ekki að búa til fyrilestur eftir 12 tíma vinnudag.

Að tjatta á Emmessenn í allt kvöld.

Horfa á heimska sjónvarpið hér í Amríku.

Sitja og horfa út í loftið og vorkenna sjálfri mér fyrir að vera vesall doktorsnemi á barmi gæðaprófs...

Skoða öll blogg á internetinu.

Drepa kakkalakkan sem er inni í eldhúsi að borða brauðið mitt (djók, ég hélt að það væri eitthvað lifandi þar inni, en þá var það bara skrjáf í poka sem ég var nýbúin að kuðla svona saman, þið vitið).

Fara að sofa (það virðist eiginlega vera mest spennandi kosturinn í stöðunni þó að klukkan sé bara hálfníu).

Posted by erna at 08:30 EH