Þriðjudagur, 17 júní, 2003
Ís og edamame

Í kvöldmatinn hjá mér í kvöld var ís og edamame. Ég eeeelska edamame. Það eru sumsagt sojabaunir sem eru ennþá í baunabelgnum. Maður sýður þær í þrjár mínútur, hellir af þeim vatninu og saltar aðeins. Og svo borðar maður þær með því að stinga belgnum upp í sig og kreista baunirnar út með tönnunum. Edamame eru til dæmis vinsælar sem bjórsnakk í Japan, en það voru japanskir veitingastaðir sem kyinntu baunina fyrst fyrir Ameríku.

Ís er líka góður.

Ég náði að vinna smá í presentasjóninni minni í kvöld. Mest svona bara að skipuleggja hvað ég ætlaði að segja og hvar, en það er samt aðalmálið. Hitt er svo bara eftirleikur. Ég hef það á tilfinningunni að ég vinni aðeins minna en venjulega á labbinu næstu daga, þar sem ég þarf að koma mér í gírinn.

Posted by erna at 10:32 EH