Ensk tunga er ekki vinkona mín í dag. Ég ætti kannski bara að ganga í klúbbinn með honum Bush kallinum...
Jæja, 70 skyggnur komnar í Power Point og allt að verða klappað og klárt. Helginni mun ég sennilega verja í örvæntingarfullum yfirlestri greina sem ég er búin að vera á leiðinni að lesa í svona tvo mánuði.
Djííses og ég fann þrjár innsláttarvillur í ritgerðinni í dag. Það stressaði mig pínu upp. Kannski bara ágætt, því að ég á bara eftir að setja inn eina mynd og þá er fyrirlesturinn tilbúinn og bara æfingar framundan.
Annað kvöld verður generalprufa þar sem stelpurnar ætla að hlusta á mig blaðra og svo ætlum við að elda góðan mat og svona, og sulla í okkur nokkrum kokkteilum.