Laugardagur, 21 júní, 2003
Indie........

Æji, það er einhver svakalegur blús í gangi í dag. Svaf allt of lengi, sennilega af því að ég er eitthvað hálflasin. Fór í klippingu og í vinnuna í hellidembu og er núna alveg hreint gersamlega búin á því, mig svimar og ég er með beinverki. Svo er alveghreint skítaveður á þessum lengsta degi ársins og þrumur og eldingar og læti. Ég ætti að vera að læra fyrir prófið á mánudaginn, en ég bara orka það ekki... Vona bara að ég verði orðin hress á morgun.

Ég væri sko alveg til í að vera með manninum mínum í útskriftarveislu hjá honum Arnari núna í staðinn fyrir að sitja hér í indie stemningu............. =(

Posted by erna at 07:30 EH

Vá, ég fattaði ekki hvað ég var þreytt eftir vikuna fyrr en ég vaknaði í dag, klukkan tvö! Eftir þrettán tíma svefn! Ég var reyndar mjög þreytt og eitthvað tussuleg í gær. En í dag er öldin önnur, mín á leiðinni í klippingu og svona!

Posted by erna at 04:01 EH
Duh...............

Öllu er nú hægt að ljúga að heiminum! Þessi maður er bara svo heimskur að hann fattar ekki að restin af heiminum er búin að fá NÓG! Hvað ætli komi næst?

Posted by erna at 02:45 EH