Sólin skín í heiði og þetta er yndislegur dagur. En, má ekki vera að því að blogga, þarf að mæta á labbið og bretta upp ermarnar.....
Ég ætti nú kannski ekki að vera að blogga svona tveimur tímum fyrir gæðaprófið, en hvað get ég svosem annað gert? Frekari ítroðsla breytir sennilega engu núna!
Það er alveg yndislegur dagur hér á Manhattan. Tuttugu og þriggja stiga hiti og fer vaxandi, varla ský á himni, bara sumar og sól. Frábær dagur til próftöku =)
Ég er að hugsa um að lauma mér út á tröppur í svosem eins og hálftíma og lesa pínu um myndun hársekkja....
Já, það er ekki laust við að ég sé svolítið stressuð núna. Varði deginum í að leita að fleiri gögnum um hársekkstjáningu á prótíninu mínu. Við hittumst svo stelpurnar hér heima hjá mér og við pöntuðum okkur mat og ég æfði fyrirlesturinn minn aftur. Það gekk reyndar ekki alveg eins vel smurt og á föstudaginn, enda var ég búin að drekka nokkur hvítvínsglös fyrir þá æfingu.
Ég hef nú bara nokkuð góða tilfinningu fyrir þessu á morgun, en við sjáum bara til. Ef allt gengur vel hittumst við stelpurnar hér um kvoldið og hristum saman nokkra kokkteila og förum svo út að borða á tíbetanskan veitingastað. Það verður áreiðanlega stuð, ég hef ekki borðað Momos síðan ég var í Nepal forðum daga, þegar ég var enn ung og óhrukkótt.