Ahh.. var að vakna, leyfði sjálfri mér að sofa út í dag svona einu sinni.
Það var stuð í gær, við stelpurnar hittumst hér heima hjá mér og drukkum martinis og borðuðum osta og ólífur og svo fórum við niður á 82 og Amsterdam og borðuðum tíbetanskan mat. Namminamm!
En nú má ég ekki lengur vera að neinu hangsi, framundan er þriggja til fjögurra ára vinna, án nokkurra raunverulegra áfanga, nema vonandi þegar ég birti vinnuna mína í vísindatímaritum. Þannig að nú er að duga eða drepast og virkilega framkvæma allar tilraunirnar sem ég stakk upp á í gær......