Miðvikudagur, 25 júní, 2003
Ljúfa líf og Marðarteljari

Það var ljúft að þurfa ekki að fara heim að lesa beint eftir vinnu í dag. Í staðinn fór ég bara heim og hringdi í manninn minn sem var að labba heim í góða veðrinu. Bara að hann hefði nú verið að labba heim til mín....

Annars er frá litlu að segja. Ég heimsótti gymmið og svona, tók þrekstigann í gegn, svona til þess að æfa mig fyrir gönguferð í sumarfríinu okkar Marðar.

Annars má ég til með að benda á Marðarteljarann hér á spássíunni. Hann er með fegurra móti í dag!

Posted by erna at 12:19 FH