Hérna, sko, ég var að reyna að skilgreina tjokkó fyrir amerísku vinkonum mínum, en var bara ekki alveg viss sjálf hver skilgreiningin væri. Fyrir mér er þetta svona meira bara tilfinningin... Getur einhver hjálpað mér? Komment á ensku vel þegin, því þá geta þær bara lesið þetta beint.
Eitt er samt víst. Nick Cave er ekki tjokkó, nei. Nick Cave er svalur.
Það er sko aldrei neinn meðalvegur í nokkrum hlut hér í þessari borg! Fyrir viku síðan var kalt og rigning og svo frá og með mánudegi skall á sumar, eða kannski frekar bara SUMAR! Grillhiti á hverjum degi. Það er reyndar bara alveg ágætt. Betra en rigning á hverjum degi alla vegana. Reyndar pínu erfitt að fara út að hlaupa í þrjátíu og fimm stiga hita, en það venst......
Nick Cave er svalur.
Nick Cave er klikk.
Nick Cave er kreisí.
Nick Cave rúlar.
Nick Cave er svakalegur.
Nick Cave er ýkt góður performer.
Nick Cave er nett geðbilaður.
Nick Cave er.
Nick Cave.
Nick Cave RÚLAR!
Tónleikarnir voru semsagt magnaðir, maður, magnaðir. Tveggja klukkutíma geðbiluð keyrsla. Ég er enn að ná mér niður!