Mánudagur, 30 júní, 2003
Skúbbauki

Mér var að berast svokallaður skúbbauki. Það er mynd sem ýtir undir skúbbið í síðustu færslu. Siggi vinur okkar tók þessa snilldarmynd á laugardaginn. Er ekki bara fögur sjón að sjá þá Ragga Kjartans og Jón Gnarr sitja og baða sig í sólinni í Central Park, umvafna fögrum fllóðum?

Myndin er líka hér. Gawd, þetta er náttúrulega ekki hægt sko, ég er að verða svona hverjir voru hvar bloggari...

Posted by erna at 11:08 EH
Tápæja...

Úúúú.. ég er svo mikil pæja. Við skvísurnar skelltum okkur í fótsnyrtingu áðan. Það er barasta ekki hægt að vera á ósnyrtum tásunum í sandölum alla daga alveg hreint. Ég held að fæturnir á mér hafi aldrei verið jafnmjúkir og ég er með flottasta blórauða naglalakk í heimi á tánöglunum =)

Posted by erna at 08:49 EH