Lífið leikur við mig þessa dagana. Það er bara eitthvað svo næs þegar veðrið er svona gott. Að hjóla í vinnuna, að borða hádegismatinn úti, að sleikja sólskinið úti í næsta almenningsgarði...
Þessa dagana mætti næstum því kalla mig "fruitarian". Það er svo mikð af góðum ávöxtum sem er gott að borða og ódýrt að kaupa hérna. Ég fór til dæmis áðan út í West Side Supermarket og keypti hina fullkomnu hunangsmelónu. Hún var fullkomlega hnöttótt og algerlega laus við alla útlitshnökra. Þegar heim kom skar ég hana í tvennt, tók fræin út og setti kotasælu í miðjuna og gæddi mér á. Og viti menn hún var einmitt líka alveg passlega þroskuð, sæt og svalandi í hitanum!
Ég keypti líka ferskjur, apríkósur nektarínur og kirsuber. Ég yrði ekki hissa ef að það færi að vaxa kirsuberjatré út úr hausnum á mér einhvern daginn, ég er búin að innbyrða svo mikið af þeim undanfarið. Ég bara hafði aldrei áður smakkað fersk kirsuber, ekki fyrr en núna í sumar. Og ég gersamlega féll fyrir þeim.
Það var svo margt sem ég fór á mis við síðasta sumar í mínum veikindum, sumarið bara brunaði hjá í einhverju kjaftæði, þannig að núna er ég algerlega að bæta mér það upp og njóta þess í botn. Næsta sumar ætla ég svo að vera búin að styrkja á mér bakið nóg til þess að fara að stunda kajaksport með Adelene. Ihh... það verður gaman!