Ţar sem ég vinn nćstumţví á spítala, (sko spítalinn er í nćsta húsi, en ţađ eru bara rannsóknarstofur í byggingunni sem ég er í), hanga yfirleitt auglýsingar upp um alla veggi ţar sem fólk er beđiđ um ađ taka ţátt í hinum og ţessum rannsóknum. Í dag ákvađ ég ađ láta til skarar skríđa og hringdi í stjórnendur einnar svona rannsóknar, ţví ađ yfirleitt fćr fólk borgađ fyrir ađ vera međ.
Ţennan hóp vantađi fólk sem talar tvö eđa fleiri tungumál. Ég hringdi inn og fékk reyndar ađ vita ađ ţađ er ekki borgađ fyrir ţáttöku í rannsókninni. Hins vegar fannst mér svolítiđ kúl ađ rannsóknin gengur út á ţađ ađ taka segulómsmynd af heilanum á manni og svo fćr fólk ađ eiga myndina af heilanum á sér í verđlaun. Ţannig ađ ég fć svör eftir nokkra daga hvort ađ ţá vantar einhvern sem talar ensku sem annađ tungumál í einhverja rannsóknina. Ţau spurđu mig líka hvort ég vćri rétthent og hvađa tungumál ég talađi. Ég er reyndar nokkuđ viss um ađ ég fć ekki ađ vera međ ţar sem ađ ég passa örugglega ekki í neinn hóp; međ reiprennandi ensku og dönsku en íslensku sem móđurmál!
-Ég vćri nú samt alveg til í ađ eiga mynd af heilanum á mér "in action"!
Ég var ađ koma heim af Placebo tónleikunum. Fór međ Sigga og hitti fullt af góđu fólki íslensku sem og útlensku.
Placebo voru flottir. Bötnuđu eftir ţví sem leiđ á tónleikana og ţeir tóku meira af gömlu lögunum. Einhvern veginn er "Without you I'm nothing" alltaf uppáhaldslagiđ mitt međ ţeim, vantađi bara Bowie.
Svona á neikvćđari nótunum, ţá fannst mér English summer rain ekki einu sinni skemmtilegt á tónleikum. Ţađ er bara eitthvađ viđ ţađ lag sem fer í taugarnar á mér.
Settuppiđ á hljómsveitinni er ansi áhugavert, ţví ađ ţeir sem spila í "alvöru" á hljóđfćrin eru bakatil, nćstum ţví baksviđs, á međan athyglisţurfandi međlimir sveitarinnar, sem kunna kannski ekki alveg mikiđ á hljóđfćri, en eru svona meira fyrir augađ, eru fremst og í sviđsljósinu. Spes, alls ekkert ađ ţví, ţeir eru nú bara svo sćtir ţeir Stefan Olsdal og Brian Molko.
Ég skil heldur ekki alveg hvađ máliđ er, ţví ađ Stefan, Brian og Steve Hewitt eru einir skráđir fyrir tónlistinni og hljóđfćraleik á diskinum, en ég hefđi sko getađ svariđ fyrir ţađ ađ ţađ voru fleiri međlimir í hljómsveitinni í kvöld!