Miðvikudagur, 9 júlí, 2003
Ameríski hreimurinn

Ég var að sortera einhver skjöl og þannig lagað í gær og rakst á íslenska örk, eitthvað plagg frá LÍN. Mér fannst blaðið alveg fáránlegt í laginu, svo langt og mjótt eitthvað og þá mundi ég hvernig það var þegar ég kom hingað fyrst.

Blaðsíðustærðirnar voru aðrar. Allar möppur eru fyrir blöð með þremur götum, einu í miðjunni og svo á sitthvorum endanum. (Heftarar eru nú samt eins). Eldavélin og bakarofnin brenna gasi, rafmagnstækin ganga fyrir 110 voltum, hitinn er mældur í Farenheit, lengdir í fetum og tommum, rúmmál í gallonum, kvörtum (guarts) og únsum, þyngd í pundum.... Það var eiginlega mesta sjokkið, að stíga á viktina og sjá tölu sem var mun hærri en hundrað!

Á tímabili var ég snillingur í hugarreikningi, var alltaf að breyta öllum einingum yfir í okkar evrópska system. Þegar ég rakst á þetta plagg frá lánasjóðnum í gær rann það upp fyrir mér hvað ég er orðin amerísk. Farin að hugsa alfarið í dollurum og öðrum skrítnum einingum. Ég veit ekki hvernig það verður þegar Mörður kemur aftur, ætli ég sé farin að tala íslensku með amerískum hreim?

Posted by erna at 10:31 EH