Sunnudagur, 13 júlí, 2003
Helgarferð

Ég var að koma heim úr helgarferð með stelpunum og er gersamlega búin á því. Við fórum í útilegu út á Long Island á föstudaginn. Það var ekkert smá gaman að komast út úr bænum svona aðeins og sofa í tjaldi og svona.

Við gengum líka í fjóra tíma í sjávarmálinu og nutum sólarinnar og golunnar af sjónum í gær. Reyndar brunnum við líka þrátt fyrir að hafa borið vandlega á okkur sólarvörn af sterkustu gerð og ég er með harðsperrur í dag af því að ganga í sandinum, það tekur einhvern veginn svo allt öðruvísi á en að ganga á malbiki!

Annars var matargerð ýmiskonar eiginlega miðpunktur helgarinnar. Við grilluðum náttúrulega og svo fékk ég að smakka svokölluð s'mores. (When you've had onen you're gonna want to have s'more). En maður býr þau til með því að bræða sykurpúða (marshmallow) yfir eldi og skella honum svo ofaná súkkulaðimola (verður helst að vera Hershey's) og svo setur maður hafrakex í samloku utanum herlegheitin og borðar af hjartans lyst. Mjög Amerískt! Það skemmtilega við s'mores finnst mér að sitja í myrkrinu við eldinn með marshmallow á teini og bræða hann og pískra og flissa á meðan með vinkonunum...

Í dag heimsóttum við svo vínbú sem eru á svipuðum slóðum og við tjölduðum, en þessi hluti eyjunnar er margfrægur fyrir víngerð. Við fórum á þrjú vínbú og smökkuðum vín og keyptum það sem okkur leist best á. Ég keypti meðal annars ljúffengt kirsuberjavín og tvær flöskur af hvítu. Það var pínu gaman að smakka svona margar tegundir af víni og finna muninn. En ég hef nú reyndar ekki mikið vit á vínum.

Fróðleikshorn helgarinnar, úr viskuhorni plöntufræðingsins í hópnum: Marshmallow dregur nafn sitt af fenjaplöntu sem ber sama nafn og hefur hvíta og mjúka rót, en sykurpúðarnir þóttu líkjast rót plöntunnar, sem heitir læknastokkrós á íslensku.

Posted by erna at 08:17 EH