Vá... nú er langskólaganga mín farin að bitna á mér og ég er farin að vera fjarsýn langt fyrir aldur fram. Það er víst ekki óalgengt að fólk sem er lengi í skóla og reynir því mikið á augun við lestur þurfi að byrja að nota gleraugu fyrr en ella.
þegar ég var að skrifa færsluna hérna áðan fattaði ég að ég er komin á stig tvö í því að sjá illa á tölvuskjáinn. Ég er búin að píra augun á skjáinn svona síðan í desember, en núna uppgötvaði ég að ósjálfrátt ýti ég tölvunni eins langt frá mér og ég get. Sumsagt, ég er orðin fjarsýn. Ætli ég verði ekki bara að fjárfesta í pæjugleraugum til þess að nota fyrir framan tölvuskjáinn....
Vá, ég er ekki viss um að Merði verði skemmt þegar hann kemur aftur. Málið er nefnilega að mér hefur farið alveg svakalega aftur í umgengni um heimilið síðan hann fór. Sko, það er ekki subbulegt hjá mér eða neitt, það er alltaf svakalega fínt og svona, enda mikill munur á því þegar ein manneskja býr í svona lítilli íbúð og þegar tveir henda dótinu sínu út um allt. Hins vegar er fullt af hlutum sem ég er farin að gera í meira mæli undanfarið og verð eiginlega að fara í fimm daga afvötnun til þess að kallinn flýi ekki heim aftur um leið og hann stígur fæti hingað inn:
1. Ég sef þversum í rúminu.
2. Þegar ég vaska upp hrúga ég öllu í uppþvottagrindina án þess að þurrka upp pottana og svona og ganga frá (Mér finnst þetta reyndar vera ákveðinn talent, sem mér áskotnaðist þegar ég var au pair, sko að ná að hrúga nær öllu leirtauinu og pottunum í grindina án þess að nokkuð detti. Það finnst ekki öllum heimilismeðlimum þessi talent vera óviðjafnanlegur.)
3. Ég geymi hjólið mitt upp við baðherbergisdyrnar, næstumþví í eldhúsinu og algerlega fyrir framjágangandi, og er þar af leiðandi sjálf alltaf með dekkjafar á sköflungnum, ekki mjög gott fyrir sjóndapra sem eiga leið á klóið snemma á morgnana.
4. Ég hlusta á þungarokk í botni á kvöldin.
5. Ég fer allt of sjaldan út með ruslið (ehm.. ég á ekki von á því að það breytist... sérstaklega ekki þegar ég fæ mann í málið).
6. Ég er búin að fylla allt skápapláss með fötum af mér.
7. Baðherbergishillan er stútfull af stelpudóti.
8. Allir "Favorites" linkarnir á tölvunni eru mínir.
9. Það eru skór út um alla íbúð.
10. Ég pissa með klósettdyrnar opnar.
11. Sjónvarpið er komið út í horn og ég man ekki hvað ég gerði við allar fjarstýringarnar.
Það er greinilegt að ég þarf að taka mig á og gera heimilið aðeins Marðarvænna, svo að mér haldist á karlinum í þetta skiptið.