Helgin var stórfín hjá okkur, þrátt fyrir að í dag sé bara venjulegur mánudagur hér í New York.
Á föstudagskvöldið ákváðum við að vera pínu flott á því og skella okkur á uppáhalds veitingastaðinn okkar hér í nágrenninu, hinn tyrkneska Turquas, og við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Maturinn þar er alltaf jafngóður og stemningin frábær.
Á laugardaginn fórum við svo með Adelene og Neemu á kajak í Delaware ánni. Veðurspáin var frekar slöpp, rigning og læti, en við ákváðum að taka sjensinn og skella okkur. Við urðum ekki fyrir vonbrigðum, því að þegar við komum á staðinn var komið glaðasólskin og það var mjög þægilegt í hitanum að róa í köldu vatninu og fá gusurnar af árunum yfir sig. Við rérum sem leið lá átta mílur niður ána, fengum okkur sundsprett og borðuðum nestið okkar á miðri leið, en nutum þess annars bara að vera úti í náttúrunni.
Í gær skelltum við Mörður okkur svo á útsölu hjá North Face búðinni hér og urðum ekki fyrir vonbrigðum. Í gærkvöld bauð Adelene svo í ljúffengan Fresh Direct kvöldverð og við komum heim afvelta af seddu eftir að hafa gætt okkur á laxi, kjúklingapasta og ostaköku í eftirrétt og skolað þessu öllu niður með hvítvíni frá Long Island.
En nú er málið bara að drífa sig í vinnunna og koma vísindunum í gang aftur....