Þriðjudagur, 5 ágúst, 2003
Hlaup í gufubaði, IKEA og svona...

Æji, hvað ég er nú orðin eitthvað löt við að skrifa hér. Meira aumingjabloggið þessa dagana.

Annars er bara allt í góðu. Við hjónin skruppum saman út að hlaupa í gær og uppgötvuðum fljótt að það er kannski ekki auðveldast í heimi að hlaupa í 85% loftraka, þó að ekki sé sólskin. Hreint eins og að hlaupa í gufubaði. Það "skemmtilega" er að svitinn gufar varla af manni, þannig að maður lítur út fyrir að hafa verið að æfa geðbilað vegna þess að fötin manns verða alveg gegnblaut af svita.

Mörður er farinn í skólann núna og ég er alveg að fara, rétt svona að undirbúa mig fyrir kvöldið, því að við ætlum að leigja bíl og fara í IKEA að kaupa meira skápapláss svo að ég þurfi ekki að geyma peysurnar mínar ofaná kommóðunni og svo að Mörður fái pláss fyrir skólabækurnar... Og svo síðast en ekki síst, þá erum við að fara að kaupa meira borðpláss fyrir eldhúsið. Jeij... þá getur maður kannski farið að elda eitthvað alminnilegt!

Jæja, vinnan bíður..

Posted by mordur at 08:16 FH