Mánudagur, 11 ágúst, 2003
The American Effect

Við skelltum okkur á Whitney safnið í gær (það heitir fullu nafni The Whitney Museum of American Art.) Tilefnið var athyglisverð sýning þar sem kallast The American Effect.

Sýningin samanstóð af verkum eftir listamenn allstaðar úr heiminum og höfðu það sameiginlegt að þemað var Ameríka. Markmiðið var held ég að skoða hvernig Ameríka hefur haft áhrif á listsköpun víðsvegar í heiminum.

Ég verð að segja það að mér finnst þetta ansi djarft framtak hjá safninu á þessum síðustu og verstu tímum bandarískrar föðurlandsástar. Verkin á safninu voru fjölbreytt og voru alveg á því að vera beinskeitt pólitísk gagnrýni á Bandaríkin út í það að vera endurspeglun af upplifun fólks af ameríska draumnum.

Mér þótti nú samt merkilegast að leiðsögumaðurinn þurfti nokkrum sinnum að vara okkur við því að fólk hafði orðið reitt og móðgast við að sjá sum verkanna á sýningunni. Ég spyr nú bara hvað sumt fólk heldur ef það fer á sýningu sem þessa og býst ekki við neinni gagnrýni eða verður móðgað og reitt við að sjá hana! Svona er nú áróðursvélin mögnuð, ha!

Posted by erna at 09:33 EH