Föstudagur, 22 ágúst, 2003
Loksins loksins

Ég var að koma heim úr síðasta tímanum í ABE prógramminu. Það er mér mikill léttir að þessu sé lokið. Þetta hefur verið mikil tímasóun og ég held ég hafi lært lítið sem ekkert. Í þeim tímum þar sem átti að þjálfa mann í að skrifa var miklum tíma varið í að kenna okkur að gera beinagrind að ritgerð, okkur var kennt að skrifa framan á umslög!!!!! Í einum tímanum var farið í það hvernig á að fá hugmyndir og síðar flokkuðum við tímarit eins og NYT, Forbes, Newsweek og fl. niður eftir því hvort þau séu fyrir almenning, fjárfesta eða stjórnendur. Einnig var farið mjög nákvæmlega í það hvernig á að gera heimlidaskrá og hvernig eigi að vitna í heimildir. Litlum tíma var varið í skriftir þangað til í síðustu vikunni, þá áttum við að skila 10 - 20 síðna ritgerð og á meðan allir voru að vinna í því á fullu var sturtað yfir okkur fullt af verkefnum. Öll þessi vitleysa var reyndar bara hjá einum kennara. Hinn kennarinn var að þjálfa framburð og talmál. Hans tímar voru sérlega skemmtilegir, sérstaklega þótti mér áhugarverðir fyrirlestrar nemenda um heimahagi og venjur. Ég öðlaðist smá innsýn í heim Kínverja og Tævana, sem mér þótti afar áhugavert, sérstaklega þar sem ég er nú ekki mjög fróður um Asíu.

Í bekknum mínum voru Kínverjar, Tævanir, Pólverji og ég. Þetta var afar góður hópur ég get ekki séð að maður hefði lifað þetta af ef svo hefið ekki verið.

Eftir rúma viku tekur alvaran við en í millitíðinni ætlum við Erna að skella okkur til Yosemite þjóðgarðsins í Kaliforníu. Það verður gaman.

Posted by mordur at 05:21 EH