Júhú! Nú er ég komin í frí!!! Ég er ekkert smá ánægð, enda er að verða komið heilt ár síðan að ég tók mér meira en stakan dag í frí frá vinnunni og náminu. Það var samt mjög næs að mæta á labbið í morgun og vinna úr gögnum, gefa frumunum smá næringu og endurtaka eina tilraun. Ég hjólaði í þvílíkri rjómablíðu, ég held að í dag sé besta veðrið sem hefur komið hér í ágúst, um 30 stiga hiti og mjög lítill loftraki.
Nú erum við hins vegar að undirbúa ferðina okkar og erum alveg á seinustu stundu eins og venjulega, en þetta reddast allt saman, eins og venjulega.
Ég er svakalega spennt fyrir gönguferðinni okkar og ég er líka mjög spennt fyrir því að koma aftur til baka eftir tíu daga. Þá verða nefnilega mýsnar mínar komnar og bara sex vikur þangað til að ég geti opinberlega byrjað á aðal-doktorsverkefninu mínu!
Ihhh! Það er svo gaman að hafa svona margt að hlakka til!