Þriðjudagur, 9 september, 2003
Not so grömpý

Jæja, er komin á toppinn á geðsveiflunni aftur! Í dag ætla ég bara að skrifa um hluti sem ég er ánægð yfir. =)

Ég nefnilega hef kannski ekki alveg efni á því að kvarta neitt, því að svo margir skólafélaga minna þurfa að taka mikið fleiri kúrsa en ég. En ég er svo sniðug að vera lífefnafræðingur og er því búin með alla stærðfræðina og eðlisefnafræðina og tölfræðina sem aðrir þurfa að taka.

Þar að auki blessaðist þetta valkúrsadæmi sæmilega. Málið er nefnilega að ónæmisfræðilöbbin á kampusnum mínum hittast einu sinni í viku, þar sem við skiptumst á að presentera vísindagreinar fyrir hvort annað. Það er svona eiginlega skyldumæting í þennan journal-club, þó að maður mæti kannski ekki alveg alltaf. Og til að tæla mann að, fær maður ókeypis hádegismat. Virkar alltaf þegar doktorsnemar eru með í spilinu!

Ég fattaði sumsé í gær að ég gæti bara skráð mig opinberlega í þennan Journal Club, og að ég fengi þá einingar fyrir hann fram að jólum. Það eina sem ég þarf að gera auka, er að skrifa eina stutta ritgerð og skrifa mjög stutta krítík í hverri viku um þá grein sem var til umræðu. Himnasæla! Þetta er eins og að fá borgað tvisvar fyrir eitthvað sem maður gerir einu sinni.

Svo í vor ætla ég að taka kúrs um "Sequencing analysis", veit ekki alveg hvað svoleiðis kallast á íslensku, en það er einmitt próflaus áfangi líka. Sweet!

Það er líka kostur við doktorsnámið, eins og Herdís sagði í kommenti hér við síðustu færslu, að það er öllum alveg sama um hvaða einkunnir maður fær. Maður á aldrei eftir að þurfa að sýna nokkrum þessar einkunnir hvort sem er (ehh... ég er farin að hljóma eins og biluð plata, ég er búin að blogga þetta svo oft). Ég veit ekki einu sinni hvort að ég fæ einkunnir fyrir þessa kúrsa. Málið er að hér eftir eru birtingar það eina sem máli skiptir. Algerlega, absolútlí það eina.

Annað til þess að gleðjast yfir er að mig vantar þriðja verkefnið til þess að vinna við. Ég er nú þegar að vinna að griplufrumurannsókn og að rannsókn á hlutverki prótínsins míns í húðfrumum. En þar sem mýsnar fyrir húðverkefnið eru ekki tilbúnar, er ég bara að vinna að einu verkefni flesta daga. Og það er sko bara alls ekki fúll tæm djobb. Þrjú verkefni er passlegt, því að þá eru einhverjar líkur á að eitt þeirra gangi upp, en það er alltaf svo mikið happa glappa í þessum lífvísindum, hvað gengur upp og hvað ekki. Þannig að nú hefst svaka stuð hjá mér við að hugsa upp B-frumuverkefni. Jeij..

Svo er náttúrulega stórskemmtilegt að mýsnar sem ég er búin að vera að bíða eftir í hálft ár komu í dag. En þær þurfa að vera í sóttkví í sex vikur áður en ég get farið að rækta þær, þannig að í janúar get ég byrjað á aðal-doktorsverkefninu mínu, en þá verð ég komin með þriðju kynslóðina og vonandi einhver eintök sem eru homozygotar fyrir erfðabreytingunni. Júhú!!!! Loksins komu þessar elskur!

Nú er ballið sko að byrja. Honnímúnið að doktorsnáminu búið og allt sett á fullt trukk. Science... here I come!

Posted by erna at 06:10 EH