RRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRr....................................... Það er pínu stress í gangi akkúrat núna. Ég á sko að halda fyrirlestur í fyrramálið. Ég er sko alveg tilbúin og allt, en samt slær hjartað í mér á trilljón og einum. Hvað ef ég segi nú eitthvað bull um griplufrumur? Hvað ef Kathryn verður svakalega pissed yfir því að eg er ekki með runur af gögnum? Ekki það að það sé mér að kenna að músin mín sé í sóttkví.... En hún á það nú alveg til, kellingin að taka smá geðvonskuköst á fólk sem er að presentera. Og þá fer ég örugglega að tala með alveg geðveikum íslenskum hreim og enginn skilur mig. Og hvað ef öllum finnst þetta bara frekar boring af því að það er sama kynning á efninu og í dataklúbbnum í júlí?
Ellefti september... Ætli það sé nokkuð ógæfumerki að halda labbfund þann dag?
Oh... það er svo gaman að vera doktorsnemi... Júhú.
Vá, hún Herdís virðist vera að upplifa ansi geðbilaða önn! (sorrý að ég linka á bloggið, en það er ekki hægt að linka á einstakar færslur hjá henni....)
Ekki amalegt samt að búa svona nálægt Niagra fossunum og kanadískum outlet-mollum!! Væri alveg til í að skella mér þangað um helgina *roðn af öfund*.
Hæ, hó! Bloggið er aftur "up and running", en Hosting Matters voru að færa dót á milli vefþjóna í gær og gleymdu að breyta permissions stillingunum á skjölunum okkar. Það er hins vegar búið að redda því núna. Jibbíjeij.
Ég missti bara einn póst, sem ég póstaði á gamla vefþjóninn, en hann var svosem ekki merkilegur. Eiginlega bara viðbót við þann sem ég skrifaði síðast:
Gleymdi einu enn til þess að gleðjast yfir! Ég er búin með kennsluskylduna, en í fyrra var kúrsunum sem við þurftum að kenna fækkað úr þremur í tvo. Júhú!
No more stupid, whining undergrads!
Ég varð bara að láta hann flakka, því að ef ég er ekki í stuði, þá þarf ég bara að hugsa um hvað ég sé heppin að þurfa ekki að kenna þessu leiðinlega, snobbaða liði hérna aftur, (þessir krakkar eru svo vanir að fá allt upp í hendurnar án fyrirhafnar), og þá hlýnar mér um hjartarætur.
Vei fyrir því!
Annars er ég bara heima núna, mest bara af einskærri leti, en ég er að undirbúa fyrirlestur fyrirmorgundaginn, en það er komin röðin að mér að halda labbfund.