Mánudagur, 15 september, 2003
Að mánudegi (næstumþví) loknum

Ég var ekker smá heppin í dag. Jerry sorteraði allar mýsnar mínar og tók skottsýni fyrir genótýperingu, svo að ég er alveg óbitin. Svo komu prímerarnir mínir og þar að auki dreif ég mig með sýni í sneiðingu, þannig að brátt verður kátt í höllinni. Jafnvel niðurstöður á næsta leiti, sérstaklega ef ég verð dugleg að pjé sjé erra í vikunni, inn á milli tilrauna sem ég er að gera með Miriam.

Svo er bara skemmtileg greinin sem ég á að lesa fyrir kúrsinn/journal clubbinn á morgun, ónæmisfræði er barasta nokkuð heillandi.

Ég er hins vegar bara svo svakalega löt þessa dagana, við að lesa sko, þannig að ég er ekki neitt búin að hugsa upp annað verkefni til að vinna við. Ef einhver hefur hugmyndir um hvernig væri sniðugt að nota Blimp-1 floxed mús með CD19 Cre, til að rannsaka hlutverk Blimp í B-frumuþroska, endilega að láta mig vita. Ég veit það, ég er nörd. En ég hugsa að fólk eigi eftir að skilja alveg jafnmikið í þessari færslu og ég skil þegar tölvunördar bloggheims blogga um tækniatriði síns tilverustigs.

Í öðrum töluðum orðum fæ ég nú bara nostalgíukast á því að lesa að hún Brynja sé að byrjá á sérverkefninu sínu.

Posted by erna at 07:17 EH
Músablús

Ég vaknaði með hálsbólgu........ snökt, og ég sem ætlaði að byrja í spinning í kvöld. Ég missti af fyrstu spinningvikunni út af bakinu á mér og núna er hálsinn að hrjá mig. Ég ætla nú samt að pakka spinningfötunum, því að venjulega er hálsbólgan verst á morgnana.

Annars nenni ég varla í vinnuna, því að í dag bíða engar spennandi tilraunir, heldur músaumönnun. Mýsnar sem ég er að sjá um fjölga sér eins og bavíanar og ég þarf að taka sjötíu mýs takk fyrir og taka karlana frá konunum svo að þær verði nú ekki ófrískar greyin og að ég sitji uppi með fimmhundruð mýs í næsta mánuði. Ó, vísindin, alltaf jafnskemmtileg. Sérstaklega þegar maður er með músarbit á vísifingri.

Posted by erna at 09:26 FH