Laugardagur, 20 september, 2003
Lørdag ved EDB maskinen

Nææsh morgun. Mmmm.. ég sit hér við tölvuna og hlusta á meistara Cave, og hita mig enn frekar að innan með heitu sterku kaffi sem bóndinn lagaði áður en hann rauk niður í bæ að horfa á fótbolta. Þannig að hann situr sennilega yfir bjórkrús núna á meðan ég sötra kaffið.

Mörður tók á móti matarsendingunni okkar og vakti mig og ég gekk frá matnum. Ljúft, að þurfa ekki að verja klukkutíma í matvörubúðinni í dag. Fá bara allt inn á gólf hjá sér. Það getur sko sannarlega verið þægilegt að búa á þessarri blessaðri eyju hér.

Ég er alveg að fara í vinnuna, en mér finnst bara svo notalegt að sitja hérna heima og skanna litteratúrinn, lesa mér til um hitt og þetta sem fórst fyrir í vikunni, bara svona aðeins að taka því rólega og njóta þess pínu að það sé helgi.

Posted by erna at 10:23 FH