Allamallah... Dagurinn í dag var frekar geðbilaður á labbinu. Sem var alveg frábært. Fyrsti svona mjúltítask dagurinn í langan tíma. Ég vann í samtals fjórum tilraunum í dag, þannig að það var span á mér.
Ég verð nú samt að segja að ég er algerlega komin úr mjúltítaskæfingu, því að það misheppnuðust tveir hlutir hjá mér og ég var orðin gersamlega dauð klukkan hálf sex, en vann til hálfátta. Ég þarf greinilega að vinna upp þolið, síðasta vetur gat ég alveg unnið þrjá fjórtán tíma vinnudaga í röð án þess svo mikið sem depla auga.
En nú er ég sumsagt komin heim og er að fara að læra heima. Þarf að lesa tvær greinar og skrifa gagnrýni á aðra þeirra og skila inn á morgun. Brjálað stuð. Ég held að ég þurfi að komast á fertugsaldurinn áður en ég fæ að hætta heimalærdómi fyrir kúrsa.
Annars er ég líka þokkalega ánægð með fyrrum starfsfélaga mína í Díkód í dag. Bara á forsíðunni á Times, und alles. Lífvísindin rúla, það er nokkuð ljóst!