Miðvikudagur, 24 september, 2003
Litscan, Vesturálman og tár í augum

Ég var að koma að ofan frá Josh og Melissu, þar sem við horfðum á fyrsta þáttinn í nýrri West Wing þáttaröð. Ég segi það nú bara að það var alveg greinilegt að Sorkin er farinn og þátturinn var eiginlega bara eitt væm út í gegn.. Hmu. Möddi er enn uppi að horfa á Law and Order, samkvæmt hefðinni, og að borða afmælisköku Meagan og Alison, en ég þarf að vinna. Litscan á morgun og ég kláraði bara helminginn í gær þannig að það liggja fyrir nokkrar greinar sem ég þarf að skanna fyrir morgundaginn. Cave er kominn í heddfónana og ég er búin að bretta upp ermarnar.....

P.s. Ég sver það, ég fæ alltaf tár í augun og ég veit barasta ekki hvað þegar ég hlusta á Rock of Gibraltar með Cave og félögum. Það er mjög, mjög, mjög langt síðan ég hef heyrt lag sem nær svona svakalega til mín. Ég á eiginlega varla orð yfir það hvernig mér líður við að heyra þetta lag.

Posted by erna at 10:43 EH
Rás 2

Ég sit heima og þykist vera að skrifa stutta ritgerð í enskunámskeiðinu. Rás 2 getur verið alveg einstaklega góð útvarpsstöð, á um það bil hálftíma er búið að skpila lög með Madonnu, Hallbirni Hjartarsyni, Led Zeppelin og fleirum góðum.

Á eftir fer ég í enskutíma, strax að honum loknum ætla ég að skella mér á Nevadasmiths og sjá Liverpool leikinn. Að honum loknum fer ég í tíma í reikningshaldi. Þá fer ég heim og upp til Josh og Melissu og horfi á fyrsta þáttinn í nýrri West Wing seríu.

Gæti orðið góður dagur.

Posted by mordur at 09:52 FH