Það er bara rólegheitastemmning hér þessa dagana. Ekkert brjálað að gerast, og það er líka bara alveg ágætt. Ég er að kýla á lestur fyrir verkefnin mín, þannig að ég er búin að sitja hér heima í allan dag og lesa og Mörður fór á bókasafnið í Baruch.
Ég fór reyndar út í sportvöruverslunina hérna á horninu og keypti mér svona stóran bolta til að gera æfingar á, það er nefnilega svo gott fyrir alla búkvöðvana að gera æfingar og þurfa að halda jafnvægi í leiðinni, en það eru einmitt þessir jafnvægisvöðvar sem eru hvað aumastir í mínum búk. Þannig að ég skellti mér út áðan, þrátt fyrir brjálaðar harðsperrur, og hljóp 5K og gerði nokkrar boltaæfingar eftirá, að forskrift SHAPE. Ég er líka að hugsa um að nota þennan bolta við skrifborðið hjá mér, í stað skrifborðsstóls, til þess að bæta enn frekar líkamsstöðuna, sem þó hefur batnað til muna undanfarið ár.
Í kvöld eru svo meiri rólegheit plönuð, Binna ætlar að kíkja í smá hangs og ég ætla að elda smá pasta handa okkur og kannski kaupa nokkra bjóra. Ekkert villt, enda langar mig að lesa meira á morgun.