Sunnudagur, 28 september, 2003
Þúngó

Ég er að fá útrás fyrir skriffinnskugeðvonskuna með því að hlusta á smá rokk. Guði sé lof fyrir heddfóna, því að Mörður er ekki alveg sammála því að Dead Kennedys séu brjálæðislega skemmtilegir. Hann hefur bara aldrei heyrt í þeim áður...

Úúúú... Ég hlakka ekkert smá til að dánlóda þeim á MP3 spilarann minn og fara út að hlaupa með "California uber alles, California uber alles, uber alles California...." dúndrandi í eyrunum. Og svo náttúrulega System of a Down, gömlu lögin, sko sem eru þokkalega þétt og fá mann til þess að hlaupa á milljón til að vera í takt.

Posted by erna at 10:16 EH
P.S... Form.is

Og mikið þoli ég ekki Form.is. Síðan er alveg óendanlega hæg og þar að auki liggur hún alltaf niðri eða er biluð að einhverju leyti þegar við þurfum að nota hana. Drasl.

Í dag eru bæði skjalamöppurnar mínar og hans Marðar óaðgengilegar og þar að auki, þegar Mörður reyndi að fá nýtt lykilorð, þá sagði kerfið honum að þessi kennitala væri ekki á skrá og bauð honum að stofna reikning.

Það er alltaf svona vesen á þessum vef, en á maður kannski bara að búast við því af svona ríkisreknu apparati...

Posted by erna at 08:15 EH
LÍN

Djöfulli er Lánasjóður íslenskra námsmanna siðlaust apparat. Sérhæfa sig í því að taka námsmenn í afturendann.

Í fyrra tók ég námslán til þess að sjá fyrir Merði. Þá hljóðuðu reglurnar upp á það að útreikningur námsláns yrði gerður í íslenskum krónum og ef að námsmaður væri með erlendar tekjur skyldi reikna gengið skv. fastsettum degi í apríl, sem jafnframt var veikasti dagurinn í gengi krónunnar í fyrra. Svo aftur er lánið borgað út á gengi útborgunardags, þannig að það var alltaf gefið mál að tekjurnar væru reiknaðar út á hærra gengi en lánsfjárhæðin og því var tekjuskerðingin hlutfallslega há.

Nú ber svo við að gengið til útreiknings var fastsett á fimmta maí í ár, þar sem gengi krónunnar var tiltölulega sterkt. LÍN-fólk vendir því kvæði sínu í kross og ákveður að það skuli reikna lánin í mynt námslands og yfirfæra tekjur sem aflað er á Íslandi, á þessu lága gengi. Aftur verða tekjurnar hlutfallslega hærri, því að þær eru reiknaðar á öðru gengi en útborgunin.

Starfsfólk LÍN á enga virðingu skilið!

Posted by erna at 05:19 EH