Mánudagur, 29 september, 2003
Hókus pókus bullumsullumkrullumrull

Úff, búin að læra heima í dag, fyrir morgundaginn. Ég er alveg gersamlega ónýt í því að læra heima, ég steigleymdi því eiginlega bara alveg þartil í dag, en ég á að skrifa og skila inn gagnrýni á tvær vísindagreinar á morgun.
En ég steypi bara og bullaði smá hérna áðan og, hókus pókus fílírókus, út prentuðust tvær bullumsullum samsuðukjaftæðisgagnrýnir á þessar greinar.

Þannig að núna er ég með tandurhreina samvisku hvað heimalærdóm varðar og þar að auki líka hvað líkamsþjálfun varðar, því að ég fór í fyrsta spinningtíma annarinnar áðan. Eftir tíman labbaði ein kvennanna úr tímanum skælbrosandi að mér og sagði við mig: "En hvað það er frábært að þér finnist líka gaman að öskra í tímum sko, gerir þetta miklu skemmtilegara". Þannig að já, ég er búin að æfa raddböndin nokkuð í dag og er því líka með hreina samvisku hvað það varðar.

Það er kannski viðeigandi að gaurinn sem skrifaði greinina sem ég er að lesa heitir Sanjay Garg.

Posted by erna at 10:37 EH